BowWow with the tooth G in da wicked house
Aðrir skemmtilegir bloggarar
Prinsessurnar mínar
30.04.2006 00:24:48 / Bowwow

Eurovision

Ég var rosalega bjartsýn á að við myndum gera einhverjar rósir í Eurovision í ár!!!!
Er nú búin að sjá tvo hálfa þætti þar sem norðurlandaspámenn spá í lögin í ár og ég er ekki lengur eins bjartsýn!!!!!
Einhvernvegin virðast flestir hafa fengið sömu hugmynd og við og ákvaðið að gera grín að þessu öllu saman og því miður verð ég að segja að af því sem ég hef séð nú þegar þá eru Finnarnir ennþá klikkaðari en við:(  Verðum bara að vona að þeir séu að ganga of langt!!!!
 
Áfram Silvía Nótt!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 00:20:53 / Bowwow

Villa Real - Arsenal

Jens Lehmann er alger snillingur!!!!!!!

Hann er klikkaður en hann er alger snillingur fyrir því!!!!!!

Ég hef búist við því að Arsenal væri að detta út úr meistaradeildinni síðan í 16 liða úrslitum og nú eru þeir komnir í úrslitaleikinn.  Væri þá ekki alveg típýskt að þar sem maður er nú loksins farinn að trúa því að þeir geti unni meistardeildina að þá eiga þeir eftir að skíttapa fyrir Barcelona:(

Ef ég lít samt raunhæft á málin þá er nú ekkert voðalega líklegt að Arsenal takist að tryggja sér sæti í meistaradeildinni á næsta ári með því að tryggja sér titilinn í ár.  Þó að vörnin sé búin að halda hreinu í 10 leikjum í röð í Evrópu þá held ég að það sé að stórum hluta vegna þess að við höfum ekki enn spilað við Barca.  Er ekki að sjá að við séum með varnarmenn til að kljást við Ronaldinho og Etoo báða í einu:(

En hver veit?


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 01:08:26 / Bowwow

Bloggvinir mínir

Jæja, jæja!!!! Ég var að reyna að drepa tímann á Gatwick flugvelli með því að fara á netið og lesa eitthvað eftir ykkur ágætu vinir. EN nei!!!!! Leitarvélin lokaði alltaf á ykkur með skilaboðum sem hljómuðu eitthvað á þessa leið....the site you have chosen may include offensife material ..... !

Ég vil því biðja ykkur kæru vinir/dónar að gæta að ykkur í skrifum ykkar!!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 16:52:14 / Bowwow

Komin aftur heim!!!!!

Borgin London:

Mér finnst London alveg ofboslega falleg borg en um leið alveg ofboðslega leiðinleg!!!!  Ég fíla það ekki að vera í fríi og það er svo mikið stress í kringum mig að ég næ ekki að njóta þess!!! Það er akkúrat London í hnotskurn.  Maður verður hreinlega þreyttur af því einu saman að horfa á allt fólkið sem er að flíta sér.

Þegar ég hef komið mér í að skoða helstu attractions í London ætla ég aldrei þangað aftur!!!!!

Ferðin í heild:

Annars var ferðin mögnuð!!!!  Svolítið mikill tími þó sem fór í að þvælast í lestunum og því hægt að segja að Þröstur sem aldrei hafði farið í lest fyrir ferðina hefur sko heldur betur bætt úr því.  Kláruðum gjafakaupin á mettíma á föstudeginum, heimsóttum svo Erlu, Kidda og Örnu Lind, sáum magnaðann leik Arsenal og Tottenham á laugardeginum og tókum léttan göngutúr í miðbænum um kvöldið áður en við fórum heim um nóttina.  Allur dauður tími fyrir utan ofantalið milli fór í mat á Mc Donalds:) og svefn!!!

Leikurinn:

Þetta var geðveikt!!!!! Fékk allann pakkann!  Ekki nóg með það að Tottenham hafi komist yfir heldur gerðu þeir það á fremur ódrengilegann hátt og þið getið ímyndað ykkur gleði Arsenal áhangenda ...Það sem eftir lifði leiks sungu Gunners (held að ég hafi náð textanum rétt) "Same old Tottenham, always cheeting, same old Tottenham, always cheeting"  og svo við lagið Go West með Pet Shop Boys "stand up if U hate the Spurs, speak up if U hate the Spurs" o.s.frv.   Svo til að fullkomna dæmið var Edgar Davids sem ég hef alltaf dírkað fyrir það hversu klikkaður hann er rekinn útaf. Náði mynd af honum að labba útaf vellinum:)

Eftir að hafa séð þennan leik get ég ómögulega skilið afhverju Henry ætti að fara frá Arsenal.  Hann byrjaði útaf og eftir 30 mín. var stadiuminn byrjaður að syngja..."Arsene Wenger bring on Henry", þegar hann byrjaði að hita upp fékk hann þvílíkt klapp, þegar hann var svo kallaður á bekkinn til að gera sig tilbúinn að fara inná var enn meira fagnað og þegar gæinn loks kom inná voru fagnaðarlætin slík að það hefði mátt halda að Arsenal hefði unnið leikinn.  Ég á ekki orð til að lýsa því sem gerðist þegar hann svo skoraði:)  Þegar einhver er svona gersamlega í guðatölu og á möguleika á þessum móttökum reglulega er erfitt að skilja að hann vilji fara annað!!!!!

Er eiginlega svolítið feginn að hann byrjaði útaf.  Hann hitaði upp beint fyrir framan nefið á mér og getiði hvað....... Hann er latur að hita upp.  Henry, Fabregas og Eboue hituðu upp á sama tíma og Henry joggaði alltaf bara hálfa leiðina með þeim og fór svo að teygja á eftir 5 mínútur.

Stutt samantekt;  Það var mögnuð upplifun að fara á mikilvægasta derbyleik liðanna síðan 1970 og eitthvað því að stemningin var eftir því. Hef ekki trú á að ég muni upplifa eitthvað þessu líkt nema Ísland eigi eftir að komast í lokakeppni HM eða EM einhverntímann:$


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 12:42:44 / Bowwow

Arsenal - Tottenham

Jæja, jæja!

Fyrir nokkrum árum vorum við Matti að ræða það að fara út á leik í enska boltanum. Ég vildi eðlilega fara á Highbury (enda búið að ákveða að byggja nýjan völl) og hann á Anfield.  Ferðinni var frestað og ég tók af honum það loforð að við myndum fara á Highbury áður en Arsenal hætti að spila þar.

Já,já, var svarið, auðvitað, við höfum nægann tíma til þess!!!!!!!!!!!!!!!

Nú á fimmtudaginn erum við að fara út til London að sjá Arsenal - Tottenham.  Sem er vel og þar með hefur Matti staðið við þetta loforð sitt. 

Ein athugasemd þó.......Við höfðum nægann tíma til að fara á Highbury en samt erum við að fara á NÆSTSÍÐASTA leik liðsins á vellinum!!!!!!!!!!!!

Og ég get sagt ykkur það að það þurfti krókaleiðir til að fá miðana!!!!!!!!

Takk fyrir það Erla og Kiddi!!!!!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 13:49:09 / Bowwow

Myndir

Það eru komnar myndir úr skýrninni inn á síðuna hennar Unnar Maríu!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 11:40:33 / Bowwow

Elín á LaManga

Sumir hreinlega standa alltaf undir væntingum og koma manni aldrei á óvart!!!!!

Elín var sett sem bílstjóri á einn bílinn hjá Fjölnisliðinu.  Ég spurði Matta hvort hann væri að grínast.  Elín myndi nefnilega villast inni í strætó!!!!!

Og hvað gerðist!!!!  Farið var í létta verslunarferð í gær og var leiðin víst ansi einföld, beinn vegur og beygja þegar þú sérð stórt Moll en hvað.....Elín endaði í Murcia!!!!

Þarf að segja meira?????


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 11:36:53 / Bowwow

Kominn tími á Blogg!!!

2. apríl átti Begga afmæli en eins og sést þá gleymdi ég að blogga um það og því geri ég það hér með.....

Til hamingju með afmælið Begga!!!!!!

Annars vil ég taka það fram að ég mundi eftir því að hún átti afmæli á AFMÆLISDAGINN og ég hringdi í hana og allt, söng afmælissönginn inn á talhólfið með þvílíkum tilþrifum og hringdi svo aftur og náði þá á henni og talaði við hana.  Geri aðrir betur!

Annars er lítið að frétta nema það að kallinn er á Spáni með Fjölnisstelpunum og er í þessu að vinna í skemmtiatriði fyrir kvöldvökuna;)  Ég held að hann og Þröstur ætli að reyna að tala Kristrúnu og Tinnu til í að taka "Til hamingju Ísland" með Silvíu Nótt.  Ef það tekst er engin spurning að þetta verður atriði kvöldsins en ef þær taka ekki þátt þá er á hreinu að það þarf að kenna þeim lexíu í því hversu mikilvægt er að eiga besta atriðið á kvöldvökunni!

Matti kann þá lexíu mætavel eins og sást alltaf á Lokahófum Fjölnis hérna um árin.  Ég á ansi skemmtilega minningar frá því þegar hann striplaðist um á G-streng við "Saturday night fever" lagið (enda vorum við ekki byrjuð saman þá) eða söng varamannasönginn við Undirspil Frigga Einars. 

Það er vonandi að hann geti kennt þessum stelpum eitthvað meira en bara fótbolta:evil:


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 21:15:50 / Bowwow

Qandalamere

There´s only one Arsene Wenger, there´s only one Arsene Wenger, one Arsene Weeeeengeeerrr, there´s only one Arsene Weheeeeenger!!!! (Sungið við lagið Blandaðu meira).  Þetta lag sungu stuðningsmenn Arsenal er þeir voru við það að slá Juve út úr meistaradeildinni og er það furða ??????

Maðurinn er snillingur!!!!!!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 16:12:02 / Bowwow

Aprílgabb

Ég held að ég og Matti höfum slegið öllum fjölmiðlum landsins út þann 1.apríl;)

Við héldum semsagt skírnarveislu og létum alla mæta klukkan 15:30 en athöfnin var ekki fyrr en 16:30 :lol:  Verst að það var óvart:^)

En samsagt þá skírðum við hana Unni Maríu um helgina og er nú stúlkan komin opinberlega í kristinna manna tölu...og þjóðskrá!!!!!!  Merkilegt það!!!!

Þökkum hér með kærlega fyrir okkur!!!  Verst að flestir sem voru í veislunni vita ekkert um þessa síðu;)

Einnig eru komnar myndir á síður stelpnanna, hjá Unni eru þær í Mars 2005 og hjá Helgu Sonju setti ég inn myndir sem ég fann frá því á Spáni í sumar og svo nokkrar nýjar myndir inn í albúmið 2-3ja ára.  (Hananú Allý, tilkynningaskylda uppfyllt)!


» 3 hafa sagt sína skoðun