Já! Nú reynir á mann!
Ég er að fara að keppa á HK móti í blaki
fyrripartinn á
laugardaginn. Bruna svo beint heim í kalkúnaveislu
móðurfjölskyldunnar. Best að hita upp í Party og co. í kvöld
svo þetta tap mitt á gamlársnótt verði ekki að vana!
Stjörnufræði:
Nálægasta stjörnuþokan við okkar er Andrómeda, Merkúr er sú
pláneta sem er næst Sólu og Plútó fjærst, þ.e. í Patrý og co.
því það var gefið út fyrir hina áhrifamiklu ákvörðun að "plúta"
Plútó niður.
Efnafræði:
N stendur fyrir Nítur í lotukerfinu, Na fyrir natrín, H
fyrir vetni og Hg fyrir kvikasilfur.
Saga:
Morðið á Frans Ferdinand Ríkiserfingja Austurríkis 28.júní árið
1914 var upphafði að fyrri heimstyrjöldinni. Hitler fæddist
20.04.1889. Seinni heimstyrjöldin hófst með innrás Þjóðverja inn í
Pólland í september árið 1939.
Bókmenntir.....PASS!!!!!
Teikning, leikur og bannorð krefjast engra æfinga af minni hálfu
og Vörumerki eru óæfanleg!!!!
Já! Kæru ættingjar.......Passið ykkur!!!!!!!!!!